Ferlið að versla borðplötu á eldhús eða baðherbergi

Þegar huga á að nýrri borðplötu úr steini á eldhús eða baðherbergi er gott að byrja tímanlega að skoða efni.
S. Helgason er með gott úrval á lager og allar lausnir fyrir eldhús og baðherbergis borðplötur, en gott að hafa vaðið fyrir neðan sig ef sérpöntun yrði fyrir valinu.

Til að byrja með er fínt að vera með ca. stærðir á plötunni, hvort það á að vera undirfelldur, sléttfelldur eða yfirfelldur vaskur og sama á við um helluborð.

Næst skoðuð við saman hvaða efni hentar í hvert verkefni, hvort það á að vera náttúrusteinn eins og marmari, granít eða kvartssídd eða kvartsefni.

Þá erum við komin með nokkuð skýra sýn og getum gefið tilboð með mælingu og uppsetningu svo steinninn sér sérsmíðaður í hvert eldhús eða baðherbergi.

Þegar innrétting er tilbúin eða amk neðri skápar þá komum við og mælum fyrir steininum og þá hefst ferlið innandyra hjá okkur að teikna, skera og pússa, það tekur um 4-7 vikur fer eftir hverju verkefni.

Steinninn er þá tilbúinn í steinsmiðjunni okkar og þá höfum við samband og mætum á staðinn og setjum hann upp, setjum vask og helluborð á sinn stað og klárum verkefnið. Þá ert þú komin með fallegan stein úr besta mögulega efni.

Allar vörur

Legsteinar

Borðplötur

Fylgihlutir

Sérsmíði

Veistu nákvæmlega hvað þú vilt?

Fylltu út upplýsingar sem við þurfum til þess að geta svarað beiðni þinni og við höfum samband við fyrsta tækifæri.

Stillingar á kökum

Með því að smella á „Samþykkja allar vafrakökur“ samþykkir þú vistun á vafrakökum á tækinu þínu til að auka leiðsögn á vefnum, greina notkun vefsvæðisins og aðstoða við markaðsstarf okkar.

Samþykkja allar vafrakökur