Það getur verið yfirþyrmandi að byrja að skoða efnin, þau eru mismunandi með mismunandi styrk og veikleiku, útliti osfrv. Þar á eftir er að ákveða þykkt efnið og svo áferð.
S. Helgason er með nánast ótæmandi val af útliti í granít, quartz, quartszite og maramara í sérpöntun en einnig mikinn og fjölbreyttan lager í sýningarsal okkar.
Hefbundin þykkt á plötum er 2cm og 3cm en einnig er alltaf vinsælt að þykkja steininn og getur hann þá verið í nákvæmlega þeirri þykkt sem hver ein einn vill og hentar hverju rými. Vinsælar þykktir fyrir eldhús er td. 5cm, 8cm og 12cm en það er allt í boði. Fyrir baðherbergin er allur gangur á þykktinni og jafnvel stundum sem handlaugin er 60cm á þykkt. í sýningarsal okkar sínum við hefbunda 2cm þykkt, 8cm, 12cm og 5cm svo það er hægt að taka upplýsta ákvörðun á hvaða þykkt hentar hverjum og einum.
Hefbundin áferð efnis er pólerað en matt hefur líka verið mjög vinsælt á quartz borðplötum og matt eða leðuráferð á granít og marmara. Í sýningarsal okkar er hægt að sjá muninn á efnum og velja út frá því.
Granít er einn harðasti steininn og þolir því álag. hita og umgengni mjög vel og er því öruggur valkostur fyrir borðplötu. Granít er náttúrusteinn og því er engin plata alveg eins og útlit graníts getur verið mismunandi.
Quartz er manngerður náttúrusteinn og því mikilvægt að skoða vel gæði hvers vörumerkis þar sem gæðin geta verið mjög mismunandi eftir framleiðendum. Okkar helsti fra mleiðandi í kvarts frá Stone Italiana sem hafa bestu gæði sem völ er á. Kvarts frá Stone Italiana þolir alla almenna umgengni í eldhúsi og hitaþolið upp að 180 gráðum . Kvarts er lokað efni og er því viðhaldsfrítt og dregur ekki í sig efni sem myndar liti eða rispur. Hefbundin þykkt á kvartsplötum er 2 cm og 3cm en kemur einnig í flestum týðum í 1.2cm. Áferð getur verið pólerað, matt eða hrufótt. Kvarts kemur í flestum litum og útlitum t.d. marmara-útliti með náttúrulegum æðum, einlitt, granít og iðnaðarútliti.
Quartzite sameinar það besta úr tveimur heimum: útlit marmara og styrk graníts. Með fallegum æðum og náttúrulegri áferð færðu fallegt náttúrulegt útlit sem heldur útliti sínu vel og hentar því sérstaklega vel fyrir eldhús.
Marmari er oft talion fallegasti náttúrusteinninn en hver plata er einstök og líkt og listarverk. Marmarinn er alltaf klassískur og heldur fegurp sinni í gegnum áratugi. Marmarinn er opinn steinn og mun því sjá á honum með tímanum og geta sterk efni skilið eftir sig bletti og rispur. Því er oft sagt að marmarinn segi sögu en gott er að vera meðvitaður um kosti og galla marmarans.
Fylltu út upplýsingar sem við þurfum til þess að geta svarað beiðni þinni og við höfum samband við fyrsta tækifæri.
Með því að smella á „Samþykkja allar vafrakökur“ samþykkir þú vistun á vafrakökum á tækinu þínu til að auka leiðsögn á vefnum, greina notkun vefsvæðisins og aðstoða við markaðsstarf okkar.
Samþykkja allar vafrakökur