Grágrýti (dólerít, smákornótt basalt) hefur verið mikið notað í byggingar og stór hluti af gömlu legsteinunum í Hólavallagarði við Suðurgötu eru úr grágrýti. Kunn hús frá 18. og 19. öld hlaðin úr grágrýti er t.d. Nesstofa, Alþingishúsið og “Steinninn”. Anddyri aðalbyggingar Háskóla Íslands er t.d. úr slípuðu grágrýti.