Gabbró er grófkornótt djúbergsafbrigði basalts, nefnt eftir borg nokkurri á Ítalíu. Hér á landi tengist bergtegundin fornum eldstöðvum sem rofist hafa niður í rætur. Jafnframt er talið að neðri hluti jarðskorpunnar (3-6 km dýpi) sé gabbró.
Mörg afbrigði eru til af gabbrói vegna mismunandi hlutfalla dökkra og ljósra steinda, t.d. er Hrappsey á Breiðafirði úr hvítu gabbrói, anorþósíti (sem einnig myndar hálendin á tunglinu). Gabbró þykir gott í skrautklæðningu á húsum og til fleiri slíkra nota.
Fylltu út upplýsingar sem við þurfum til þess að geta svarað beiðni þinni og við höfum samband við fyrsta tækifæri.
Með því að smella á „Samþykkja allar vafrakökur“ samþykkir þú vistun á vafrakökum á tækinu þínu til að auka leiðsögn á vefnum, greina notkun vefsvæðisins og aðstoða við markaðsstarf okkar.
Samþykkja allar vafrakökur